fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Þingflokkur Miðflokksins mun ekki styðja við þessa fjármálaáætlun, hún verður að vera á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. En ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til þess að nýta sumarið vel hvað það varðar að leita leiða til aðhalds, sem skiptir máli, áður en fjárlög verða lögð fram hér í haust. Hæstv. fjármálaráðherra sagði í umræðunni áðan að þeir sem gagnrýndu hversu hægt eða illa gengi að draga úr útgjöldum ættu að hafa svona byrjunarpunkt, 25 milljarða, vegna þess að allir þeir sem gætu ekki lagt til aðhald upp á hálft prósent af ríkisútgjöldum væru í raun ómarktækir í umræðunni. Ég var ánægður að heyra þetta hjá hæstv. ráðherra því að þarna er komin einhver tala sem er raunverulegt hald í. En hver var tillaga ríkisstjórnarinnar síðastliðinn mánudag hvað aðhald varðar? Hún var 18 milljarðar. Hún var minni en það sem hæstv. ráðherra segir réttilega (Forseti hringir.) að ætti að vera grunntalan þegar kemur að því að horfa til aðhalds í útgjöldum ríkissjóðs.