Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 122. fundur, 9. júní 2023.
fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
894. mál
Virðulegi forseti. Hér erum við að leggja til að breiðu bökin taki á sig það að borga meira til samfélagsins í því formi að þeir sem eru að greiða sér fjármagnstekjuskatt, sem eru sérstaklega þeir sem eru í hæstu tekjutíundinni, að í stað þess að borga fjármagnstekjuskatt þá verði hann lagður niður og í staðinn verði borgaður tekjuskattur af slíku.