Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:36]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Í a-lið er lagt til að liðurinn Landbúnaður hækki um 113 millj. kr. á ári en það er til þess að fullfjármagna þá aðgerðaáætlun sem ríkisstjórnin hefur þegar unnið í tengslum við það að ná að losa okkur við hina illu riðuveiki.