Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:37]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Eins og kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans hefur áætlun um að flýta ræktun fyrir riðuþoli í för með sér aukin útgjöld og það er einhugur, ekki bara í ríkisstjórn heldur líka í þinginu hér, um að fara þá leið. Við þurfum að fara í nákvæma útfærslu til þess að geta sett niður skýra tölu í þessum efnum. En ég ítreka það að í þessi verkefni verður farið af fullum krafti. Það stendur ekkert annað til. Sú áætlun verður að fullu fjármögnuð og þannig verða líka til lengri tíma sparaðir gríðarlegir fjármunir og vonandi verður riðu útrýmt hér fyrir fullt og allt.