Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:38]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegur forseti. Hér fyrir nokkrum dögum samþykkti Alþingi aðgerðaáætlun í geðheilbrigðismálum. Hv. velferðarnefnd fékk áætlun um kostnaðinn við að útfæra þá áætlun og þessar tölur sem við erum að leggja til hér koma beint frá heilbrigðisráðuneytinu. Við höfum áður séð það hér í þinginu, því miður, að lagðar eru fram áætlanir eða gerðar samþykktir um að bæta geðheilbrigðisþjónustu en síðan er hún aldrei fjármögnuð. Hér erum við einungis að reyna að tryggja að ríkisstjórnin standi við gefin loforð með því að hafa fjármagnið inni í fjármálaáætlun en ekki bara eitthvert fallegt plagg um aðgerðaáætlanir til geðheilbrigðismála.