Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 122. fundur, 9. júní 2023.
fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
894. mál
Virðulegi forseti. Eins og kemur fram í nefndaráliti 1. minni hluta er eitt af þeim stóru verkefnum sem þarf að ráðast í að auka framboð á húsnæði. Því miður er það þannig að í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er einungis ætlast til þess að það rúmist innan fjárfestingarmarka, eins og það var orðað. Hér erum við að leggja til að settur verði peningur á tímabilinu til þess að fara í fleiri hlutdeildarlán og í stofnframlög til fleiri hagkvæmra bygginga.