Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:54]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Forseti. Ég er á rauða takkanum hérna en ég er sérstaklega rauður út af einu máli í þessari fjármálaáætlun, sem er kannski eitt af fáum málum sem er útfært, og það varðar það að taka á fjármuni sem hafa verið nýttir til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóðanna og færa yfir í að bæta stöðu þeirra sem þiggja bætur í almannatryggingakerfinu. Þarna er um að ræða eitthvað sem vinnumarkaðsráðherra ætti að standa vörð um, að ekki sé verið að slátra kjörum sem urðu að veruleika 2005 og hafa verið framlengd síðan. En félagsmálaráðherra er ekki að hlusta í þessu máli og maður veltir fyrir sér: Skyldu þessir tveir aðilar ekki tala saman í þessu máli?