Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 122. fundur, 9. júní 2023.
aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
940. mál
Virðulegi forseti. Við erum hér að greiða atkvæði um grundvallarréttindi fólks á vinnumarkaði. Við erum að gefa það skýrt út að hægt sé að halda utan um vinnutímaskráningu starfsfólks þannig að ef upp koma einhver vafamál geti fólk leitað réttar síns, hvort sem er til stéttarfélags eða fyrir dómi. Ég segi því já eins og mér sýnist allir aðrir hér í salnum gera.