Land og skógur.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um mikilvægt mál, sameiningu tveggja stofnana, þar með forystu í verkefnum sem varða vernd og nýtingu jarðvegs og gróðurs, lands og skóga. Verkefni stofnana sem starfað hafa yfir 100 ár og allan þann tíma hefur sameining verið rædd. Nú hefur náðst sameiginleg sýn á sameiningu í góðri sátt þeirra sem sækja þekkingu til stofnananna, sérfræðinga í málaflokknum og stjórnvalda. Þá er hér lögð fram lítt rökstudd tillaga um að breyta heiti stofnunarinnar úr Landi og skógi í Foldu, þvert á fyrirliggjandi nefndarálit. Orðið fold merki jörð eða land og folda er kvenkynsnafn dregið af orðinu. Þar með væri búið að ýta tilvísun til gróðurs úr nafni stofnunarinnar og dregið úr gagnsæi nafnsins. Orðið er víða í notkun í alla vega samhengi, bæði innan lands og utan, og lénið hefur verið í eigu Sláturfélags Suðurlands í 14 ár.
Virðulegi forseti. Ég styð málið en ekki breytingu á nafni.