Land og skógur.
Hæstv. forseti. Við í Samfylkingunni styðjum þetta góða mál og sameiningu þessara gagnmerku stofnana, Landgræðslunnar og Skógræktar ríkisins, sem eiga sér sögu aftur til ársins 1907. Það er mjög mikilvægt að þingmenn hugi að því að hér er verið að sameina vinnustaði, búa til nýja stofnun og það þarf að huga að því að nýta þá sérfræðiþekkingu og fagmennsku sem nú þegar býr meðal starfsfólks þessara stofnana að fullu. Gæta að réttindum þeirra, gæta að uppbyggingunni þannig að sómi sé að og sjá til þess að úr verði sterk stofnun sem græði landið, vinni gegn loftslagsbreytingum og geri okkur stolt af því að vera í forystu í umhverfisvernd á heimsvísu.