Land og skógur.
Herra forseti. Við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd höfum verið að takast á um þetta mál í allan vetur — eða takast á, þetta hefur nú bara verið mjög góð umræða og fróðleg. Það segir kannski margt að helsta umræðuefnið var nafngiftin á nýrri stofnun og menn hafa tjáð sig mikið um það. Ég ætlaði nú bara fyrst og fremst, þegar ég kallaði eftir orðinu, að styðja þetta nafn, Land og skógur, en var að frétta að það er búið að taka til baka þessa frávísunartillögu eða breytingartillögu um nafnið. Ég fagna því að við getum þá bara samþykkt Land og skógur sem er lýsandi fyrir þá starfsemi sem þarna verður og þannig hef ég fylgt málinu. En gott í bili.