Land og skógur.
Virðulegi forseti. Sem framsögumaður þessa máls vil ég þakka fyrir gott samstarf í hv. umhverfis- og samgöngunefnd við vinnslu þess. Eins og hér hefur komið fram þá hefur það kannski verið alveg frá upphafi fyrri stofnunarinnar frá 1907, með stofnun Sandgræðslunnar, sem rætt hefur verið um það hvort stofnanir sem þessar eigi heima saman. Við erum að ná þeim árangri í mjög breiðri samstöðu sem ég held að sé mjög mikilvægt. En að hluta til held ég að rekja megi þessa breiðu samstöðu til langs meðgöngutíma hugmyndarinnar en jafnframt þess — vil ég meina og tel mig vera að tala fyrir hönd okkar í umhverfis- og samgöngunefnd — að málið kom líka afskaplega vel undirbúið til okkar. Það fann maður þegar gestir komu fyrir nefndina. Ég styð því þessa sameiningu glaður og hlakka til að sjá vöxt og framþróun þessarar stofnunar inn í framtíðina.