Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[14:05]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég fagna því mjög að við séum loks að greiða atkvæði um sameiningu þessara tveggja stofnana. Það hefur verið til umræðu hér á þinginu frá því að ég kom hingað fyrir tíu árum og mögulega lengur. Ég tek undir með hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni að sameiningin er vel undirbúin og það var ótrúlega mikill samtakamáttur á báðum stofnununum um að láta þetta ganga vel og mikill friður var um þetta mál, fyrir utan nafnið eins og hér hefur komið fram. Ég er mjög ánægður með að við höldum okkur við nafnið Land og skógur og styð það heils hugar.

Að lokum vil ég bara senda þau skilaboð, um þróun á nýrri stofnun, að það þarf að þróa hlutverk hennar eftir að hún er komin af stað af því að í dag er hún stjórnsýslustofnun, eftirlitsstofnun, ráðgjafarstofnun og framkvæmdastofnun.