Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[14:06]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég hef haft áhyggjur af tvennu varðandi þetta annars ágæta mál. Annars vegar að það gæti leitt til þess, eins og dæmin sanna, að störf, starfsemi, yrðu flutt frá landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðið. Í þessu tilviki hefur maður sérstakar áhyggjur af þeirri miklu og góðu starfsemi sem hefur byggst upp á Austurlandi. En vonandi standa menn við þau fyrirheit sem gefin hafa verið um að það verði í lagi. Ég hef hins vegar haft smááhyggjur af því að þessari stofnun verði falið, miðað við orðalag í frumvarpinu, að elta einhverja umhverfisstefnu Evrópusambandsins eða annarra sem á ekki við hér og verði falið að sökkva landi, eyðileggja ræktarland. Vonandi verður það í lagi líka, ella ætti þessi stofnun að heita Auðn og mýri en við treystum því að hún verði Land og skógur og snúist um ræktun. Að því sögðu mun ég styðja þetta mál.