útlendingar.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (um atkvæðagreiðslu):
Virðulegi forseti. Mig langaði bara að koma hér upp og óska þinginu og okkur öllum, ríkisstjórninni, nefndinni og öðrum, til hamingju með að afgreiða þetta flotta frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra. Við erum hér að stíga mjög mikilvægt skref í því að breyta löggjöf um atvinnuréttindi fyrir útlendinga á Íslandi sem lengi hefur verið bent á að þurfi að betrumbæta. Þetta snýst um það hvort tveggja að fólk sem er að leita að betra lífi komi inn í það kerfi og að við gerum það auðveldara fyrir alþjóðlega sérfræðinga að koma hingað, svo að við séum samkeppnishæf við önnur lönd um hæft fólk og löðum að þekkingu. En þetta snýst líka ekki síst um að tryggja að erlendir nemendur, sem eru í háskóla hér á landi, fái dvalar- og atvinnuleyfi í þrjú ár að námi loknu. Það eru ýmis lönd sem halda í þekkingu Íslendinga að námi loknu erlendis og við gerum það sama hér. Mig langar bara að óska þinginu til hamingju með að klára þetta mikilvæga mál nú við þinglok. (Forseti hringir.) Ekki er hægt að segja að þingið sé ekki að ná árangri við þessi þinglok.