útlendingar.
Virðulegi forseti. Þetta er mjög gott mál og á m.a. rætur sínar að rekja til áherslna okkar Vinstri grænna. Ég lagði fram mál um þetta á síðasta kjörtímabili og nú er þetta að verða að veruleika. Þetta mál er ekki einungis þeim til bóta sem óska þess kannski fyrst og fremst að vera hér, læra og starfa, heldur mun sú þekking og reynsla sem það fólk sem fær þetta tækifæri býr yfir auðga menningu okkar, samfélagið í heild sinni en líka efnahaginn þannig að við getum nýtt starfskrafta þeirra enn frekar en verið hefur. Ég fagna þessu máli svo sannarlega.