Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:11]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Lagaskylda til greiðslu iðgjalds til skyldutryggingar lífeyrisréttinda fellur niður við 70 ára aldur. Á sama tíma fellur skyldubundið lífeyrisiðgjald launagreiðanda vegna launþega einnig niður vegna aldurs. Þannig verða eldri starfsmenn ódýrara vinnuafl en þeir sem eru yngri en 70 ára og eldri starfsmenn á verri kjörum en hinir.

Minni hluti velferðarnefndar tekur undir mótmæli stéttarfélaga um þetta og leggur fram breytingartillögu um að skyldubundið lífeyrisgjald launagreiðanda verði greitt í séreignarsjóð þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem vilja og geta unnið eftir 70 ára aldur.

Við 2. umr. kallaði ég breytingartillöguna inn til 3. umr. vegna þess að málið var allt kallað inn og mér heyrðist á stjórnarliðum að þeir skildu nauðsyn þess að samþykkja breytingartillöguna. Skemmst er frá því að segja að þar var ég of bjartsýn um skilning hv. stjórnarliða á kjörum þeirra heilbrigðisstarfsmanna sem á að hvetja til og grátbiðja um að vinna lengur til að mæta mönnunarvandanum. (Forseti hringir.) Samfylkingin getur ekki samþykkt þetta frumvarp ef breytingartillagan sem kemur til atkvæða nú á eftir verður ekki samþykkt.