heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Við erum hér að afgreiða mjög gott mál sem ég styð, en ég styð hins vegar ekki framkomna breytingartillögu. Það er nú þegar svigrúm í lífeyriskerfinu sem þjónar þeim hópi ríkisstarfsmanna sem frumvarpið varðar. Þá vil ég einnig undirstrika að frumvarpið felur í sér mikla bragarbót varðandi kjör og ýmis réttindi þeirra 2% heilbrigðisstarfsmanna sem starfandi eru hjá ríkinu og náð hafa 70 ára aldri. Þrátt fyrir að ekki séu gerðar breytingar á lífeyrissjóðakerfinu eða reglum um iðgjöld og mótframlög þá er þetta frumvarp mjög jákvætt skref fyrir þá sem eru að vinna á þessum aldri.
Meiri hlutinn beinir því samt sem áður til stjórnvalda að vinna með aðilum vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðum að lausn á þeim álitamálum sem kunna að skapast. Við erum þess vegna öll í raun sammála um lokamarkmiðið en greinir á um leiðirnar. En ég tel nægan tíma til þess að greiða úr álitamálum áður en væntanleg lög taka gildi.