heilbrigðisstarfsmenn.
Hæstv. forseti. Við greiðum hér atkvæði um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn, um hækkun hámarksaldurs. Við erum að leggja til að auka möguleika þeirra sem kjósa að starfa eftir sjötugt, ef þeir hafa heilsu til, á sveigjanlegum starfslokum. Hvað felst í þessu? Hér erum við, það verður að koma skýrt fram, að taka mjög jákvætt skref. Þetta er mikilvæg réttarbót fyrir þá sem kjósa að starfa áfram. Þetta tryggir mun betur kjör en tímavinnusamningar sem eru þegar í gildi og um 2% starfsfólks þarf að sætta sig við, og önnur launatengd réttindi eins og hv. formaður velferðarnefndar fór vel yfir. Það eru ekki forsendur til að breyta lögum og reglum sem gilda um lífeyrisgreiðslur og það er ekki verið að taka það skref hér.
Ég vil hins vegar ítreka þá skoðun mína að sveigjanleg starfslok ættu að gilda um alla opinbera starfsmenn (Forseti hringir.) og í samhengi við slíkar breytingar þarf að taka umræðu um breytingar á lífeyriskerfinu með aðilum vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðum.