heilbrigðisstarfsmenn.
Forseti. Í þessari umræðu hafa fulltrúar ríkisstjórnarinnar gert lítið úr áhyggjum stéttarfélaganna með því að segja að það megi alveg borga inn í lífeyrissjóðakerfið fyrir fólk sem svarar neyðarkalli stjórnvalda og vinnur eftir sjötugt í heilbrigðiskerfinu. Það sé sveigjanleiki í kerfinu til að gera það, en þau fást ekki til að segja að þau ætli að gera það. Þau eru ekki einhver hlutlaus aðili að þessu. Þau, ríkisstjórnin, eru launagreiðandi þessa fólks og þau fást ekki til að segja hér í þessum ræðustól: Nei, nei, stéttarfélögin þurfa engar áhyggjur að hafa. Við ætlum að dekka þetta með launum.
Meðan ríkisstjórnin treystir sér ekki til að segja að kjör fólks verði ekki skert um 11,5% ef þau svara kallinu, ef ríkisstjórnin treystir sér ekki til að festa það í lög að þetta fólk verði að fá að halda sömu kjörum ef það vinnur eftir sjötugt, af hverju ætti fólk að treysta því? Eins og við töluðum um hér í 2. umr.: Ríkisstjórn sem talar um að eldra fólk sé virði en ekki byrði (Forseti hringir.) en sýnir það virði síðan sem 11,5% minna (Forseti hringir.) ef það velur að vinna áfram á heilbrigðisstofnunum. Virði en ekki byrði — bara minna virði.