Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:20]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég á svo erfitt með að skilja hæstv. heilbrigðisráðherra og hv. stjórnarþingmenn þegar þeir tjá sig um þetta mál. Málið fjallar um takmarkaðan hóp, um ákveðna heilbrigðisstarfsmenn, ekki alla heilbrigðisstarfsmenn, heldur ákveðna heilbrigðisstarfsmenn sem mega vinna lengur en aðrir. Þeir mega vinna til 75 ára aldurs, frá 70–75 ára. Fyrst við getum sett lög um takmarkaðan hóp varðandi vinnuskyldu þá getum við auðvitað gengið frá málinu í leiðinni með lífeyrisréttindin á móti. Hæstv. heilbrigðisráðherra segir: Við þurfum að líta á málið heildstætt. Lítum endilega á málið heildstætt þegar það er komin heildstæð tillaga um að fólk geti unnið lengur en til 70 ára aldurs. Nú erum við með takmarkaðan hóp og það réttlætir það að lífeyrisréttindi séu sett fyrir þann takmarkaða hóp í leiðinni. (Forseti hringir.) En ekki vera að biðja fólk um að koma og vinna, (Forseti hringir.) vera ódýrara vinnuafl á lakari kjörum en aðrir.