heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegur forseti. Ég sé það að ríkisstjórnin ætlar að toppa sjálfa sig og neita þessu. Ég hélt satt að segja að ég myndi aldrei ég lenda í því aftur hér að tekinn yrði hópur aldraðra og farið svona illa með hann. Þessi ríkisstjórn samþykkti 10% lægri ellilífeyri á ákveðinn hóp aldraðra, þá verst settu í okkar samfélagi — 10% lækkun. Núna er komin 11,5% lækkun á ákveðinn hóp sem verið að biðja um að vinna. Þetta er gjörsamlega fáránlegt. Þeir ætla að réttlæta sig með því að þetta sé allt í lagi af því að fólk sé á tímakaupi og þetta gæti verið betra. Ég hef aldrei skilið svona réttlætingu; að þeir séu með eitthvað slæmt og þeir ætli að hafa það áfram slæmt en aðeins betra. Kannist þið við þetta? Jú, gagnvart eldri borgurum og öryrkjum þegar þeir fullyrða að þeir hafi svo rosalega gott. — Ég mun segja nei.