afvopnun o.fl.
Herra forseti. Endurtekið efni frá því í skyldu máli sem við ræddum hér í gær. Þetta mál gekk til utanríkismálanefndar 19. apríl en það gleymdist að senda það til umsagnar fyrr en 31. maí þegar búið var að vinna drög að nefndaráliti. Þá var umsagnaraðilum gefið svigrúm frá miðvikudegi til sunnudags til að skila inn athugasemdum. Ein þeirra barst reyndar degi seinna, enda ríkisstarfsmennirnir hjá Samgöngustofu kannski lítið að vinna á laugardögum og sunnudögum, en þá var bara búið að afgreiða málið frá nefndinni til umræðu. Þetta eru vinnubrögð sem við getum ekki samþykkt hér á þingi í máli sem skiptir jafn miklu og frumvarp um afvopnun, frumvarp um það að við tryggjum, hvað eigum við að segja, mannréttindanálgun í alþjóðasamfélaginu. Við ætlum að gera það bara án þess að eiga samtal við kóng eða prest, leggja bara hér fram frumvörp, spá ekkert í að tala við sérfræðinga eða almenning en síðan, þegar við erum runnin á rassinn með það, senda það út til málamynda til umsagnar.