afvopnun o.fl.
Herra forseti. Já, endurtekið efni eins og um frumvarp sem var hér til umræðu í gær um þvingunarráðstafanir. Það sama gildir um þetta frumvarp og meðferð þess í utanríkismálanefnd, að það er einfaldlega ekki rétt sem hv. þm. Andrés Ingi Jónsson segir. Þetta mál hefur verið gríðarlega vel unnið. Það var sent í samráðsgátt af hálfu stjórnvalda og þá bárust engar umsagnir. Það var unnið í nánu samstarfi við alla helstu hagaðila og þegar það var til meðferðar í nefndinni, já, þá kom í ljós að það höfðu ekki borist umsagnir og var send út umsagnabeiðni og á endanum barst umsögn frá Skattinum, ef ég man rétt. Nefndin fór … (AIJ: Og Samgöngustofu …) — Og Samgöngustofu eftir að frestur rann út. Nefndin fór vandlega yfir málið. Enginn efnislegur ágreiningur hefur komið upp um málið (Forseti hringir.) og þrátt fyrir þessa örlitlu hnökra á málsmeðferð, sem eru í rauninni engir að mínu mati, þá er málið fullbúið og vel tækt til afgreiðslu.