afvopnun o.fl.
Herra forseti. Ég vil bara að það komi skýrt fram — vegna þess að hv. framsögumaður málsins sagði að það hefði ekki verið rétt sem ég sagði hér, en síðan endurtók hann allt sem ég sagði og undirstrikaði að allt sem ég sagði var rétt. Ég taldi einfaldlega upp þær dagsetningar málsins sem liggja fyrir í þingskjölum. Þann 19. apríl var mælt fyrir málinu og það gekk til nefndar. Þann 31. maí var það sent til umsagnar. Umsagnarfrestur var veittur frá þeim miðvikudegi til sunnudagsins á eftir. Það skiptir Alþingi Íslendinga engu máli hvað framkvæmdarvaldið gerir á sinni samráðsgátt. Við erum með okkar eigin sjálfstæða umsagnarferli. Þingleg meðferð verður ekki framseld til framkvæmdarvaldsins, eins og má lesa úr orðum hv. framsögumanns nefndarinnar. Þessi vinnubrögð eru ekki Alþingi sæmandi. Við eigum að sýna mikilvægum frumvörpum þá virðingu að senda þau til umsagnar og hlusta á það sem þar kemur fram.