afvopnun o.fl.
Virðulegi forseti. Þetta er mál sem ég og við í Viðreisn styðjum og ég er á nefndarálitinu í þessu máli. Vissulega voru hnökrar við meðferð málsins í nefndinni. Eftir sem áður tókum við mjög sjálfstæða og ígrundaða yfirlegu yfir þetta mál. Ég tel það skipta máli að við klárum þetta mál núna og ég styð það eindregið eins og það liggur fyrir núna. Við fengum öll tækifæri í nefndinni til að skoða málið og það var unnið eins vel og hægt var að gera við þessar aðstæður þannig að ég mun greiða þessu máli atkvæði mitt.