uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Herra forseti. Ég fagna því sérstaklega í dag að við séum að klára þetta mál fyrir þinglok, 2. og 3. umr. Við erum að greiða atkvæði um stórt og mikið flugöryggismál sem eflir flugöryggi í landinu. Þetta er mál sem mun efla rekstraröryggi og alþjóðaflugvallakerfi landsins og raunverulega alla flugvelli landsins. Þetta eflir Akureyrarflugvöll, Egilsstaðaflugvöll og Reykjavíkurflugvöll til að sinna hlutverki sínu sem varaflugvellir. Varaflugvallargjaldið gamla var tekið af í maí 2011 og síðan hefur kerfið verið verulega vanfjármagnað og stór og mikil innviðaskuld hefur myndast sem við erum að reyna að laga hér í dag og vonandi tekst að laga það á næstu árum.
Ég vil taka það fram að ég tel að það sé réttast að hefja sem allra fyrst framkvæmdir á Egilsstaðaflugvelli, á norðurenda brautarinnar, til að tryggja flugöryggi í heildarkerfinu. Það væri stærsta skrefið í fyrstu atrennu. Ég vil fagna þessu sérstaklega, eins og ég sagði áðan, og þessu verður fagnað sérstaklega í kvöld af minni hálfu. [Hlátur í þingsal.]