Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.

941. mál
[14:42]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég kem hingað líka til að fagna eins og hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson því að hér erum við að afgreiða mikilvægt mál, mál sem hefur lengi verið baráttumál þeirra þingmanna sem horfa á mikilvægi heildstæðs flugvallarkerfis þar sem fjármagn verður nú tryggt til að hægt verði að byggja upp varaflugvelli í þremur landshlutum og um leið tryggja öruggt flugvallarkerfi fyrir millilanda- og innanlandsflug; í senn mikilvægt fyrir samgöngur, ferðaþjónustu, flugöryggi og umhverfi. Þetta er eitt af þeim málum sem við þingmenn Norðausturkjördæmis höfum verið mjög samstiga um, allt frá því að ég settist fyrst á þing 2013 og er ástæða til að þakka öllum þeim sem þar hafa verið ötulir talsmenn. Einnig þakka ég hæstv. innviðaráðherra fyrir að leggja þetta mál fyrir þetta þing.