uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Hæstv. forseti. Við í Samfylkingunni styðjum þetta mál, enda veitir svo sem ekki af því að afla tekna fyrir ríkissjóð eins og árferðið er. En það er ekki efni máls heldur það að benda þingheimi á, og það kemur fram í nefndaráliti minni hlutans í nefndinni, að þetta sama gjald var fellt niður með breytingu á lögum árið 2011, þ.e. varaflugvallargjaldið. Þá var það skilningur þeirra sem afgreiddu það mál úr hv. samgöngunefnd að Isavia ohf. myndi afla þessara tekna með öðrum hætti. Þetta beinir sjónum okkar að því að við hér á löggjafarþinginu berum líka ábyrgð á því hvernig opinber hlutafélög starfa og hvernig þau verja þeim tekjum sem þau hafa, af því að þessum tekjum Isavia hefur ekki verið varið í uppbyggingu innanlandsflugvalla síðastliðin tíu ár. Þær hafa farið í eitthvað annað. Ég vildi að þetta kæmi fram hér.