uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegi forseti. Hér fögnum við þvert á flokka því að við séum að klára þetta mál. Við erum að tala um öryggismál, við erum að tala um almenningssamgöngur. Þetta er ofboðslega mikilvægt og uppbygging varaflugvalla er mál okkar allra sem hér búum og okkar gesta.
En ég get ekki komið hingað upp öðruvísi en að minnast á það að þrátt fyrir að við byggjum upp öfluga og mikilvæga flugvelli þvert um land þá skýtur skökku við að jafnvel tekjuháir einstaklingar hafi ekki efni á því að kaupa flugmiða í innanlandsflugi, hvað þá aðrir sem þurfa jafnvel lífsnauðsynlega að nýta sér þjónustuna. Það þurfum við að hugleiða.