uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegi forseti. Ég vil, líkt og aðrir þingmenn, fagna því skrefi sem við erum að stíga hérna í dag þegar við samþykkjum þetta frumvarp. Það er afar mikilvægt að við höldum áfram uppbyggingu innviða um allt land og þetta er partur af því að efla flugvelli okkar, hvort sem það er á Egilsstöðum eða á Akureyri. Það er uppsöfnuð þörf þar varðandi viðhald og uppbyggingu og þetta er liður í því að fá tekjur inn í ríkissjóð til þess að geta greitt fyrir þær framkvæmdir. Sem framsögumaður málsins þakka ég hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir góða vinnu við málið. Ég er ansi hrædd um að það verði bara mjög margir þingmenn sem fagna þessu skrefi hér í kvöld.