Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.

941. mál
[14:46]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Eins og kom fram í máli hv. þm. Þórunnar Sveinbjarnardóttur er farið yfir það í nefndaráliti minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar hvernig varaflugvallargjaldið var á sínum tíma. Það er eiginlega hægt að segja að það hafi ekki verið lagt niður heldur sameinað ýmsum gjaldstofnum og fært inn til Isavia, bara undir öðru heiti. Isavia virðist síðan einhvern veginn hafa láðst að láta þann tekjustofn renna til þess sem hann átti að renna til og safnaði þar með því sem fyrirtækið metur sem 16 milljarða innviðaskuld. Mér finnst þetta skringilegt og mér finnst eiginlega dálítið skrýtið að lausnin á því að tilfærsla á varaflugvallargjaldinu hafi ekki heppnast sem skyldi sé sú að búa bara til nýtt varaflugvallargjald. En það er niðurstaðan hér.

Svo langar mig kannski, svo ég haldi áfram að fagna eins og annað fólk hér í sal, að fagna því að ríkisstjórnin hafi séð að það er hægt að leggja komuskatt á ferðamenn. Endilega takið þessa hugmynd, kæra ríkisstjórn, víkkið hana út og nýtið hana til að byggja upp nauðsynlega öryggisinnviði, nauðsynlega innviði í þágu náttúrunnar, nauðsynlegt undirlag undir þá mikilvægu atvinnugrein sem ferðaþjónustan er.