uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Herra forseti. Það er nú svolítið sérkennilegt en gaman að sjá hér Sjálfstæðismenn fagna svona innilega nýrri skattheimtu. En við í Flokki fólksins styðjum nú ekki þessa gjaldtöku. Það er kannski einfaldlega vegna þess að við höfum bara of mörg dæmi um svona sérstakar skattheimtur, að þær skili sér ekki til þeirra verkefna sem þeim er ætlað að fjármagna. Og síðan teljum við einfaldlega að það séu kannski aðrar leiðir sem eru réttlátari en að fara í svona nefskatt þó að smár sé í þessu tilviki. En ég sé að fögnuðurinn mun eflaust standa hér hjá Sjálfstæðisflokknum fram eftir kvöldi og jafnvel inn í nóttina og verður maður þá ekki bara að óska þeim til hamingju með þessa nýju skattheimtu hérna í lokin þó svo að við í Flokki fólksins ætlum ekki að greiða atkvæði með henni í þetta skiptið?