kosningalög o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á kosningalögum, lögum um starfsemi stjórnmálasamtaka og sveitarstjórnarlögum.
Lagt er til að gerð verði lagatæknileg breyting á 52. gr. frumvarpsins. Í 52. gr. frumvarpsins er lagt til að við sveitarstjórnarlög bætist ný grein, 133. gr. a, sem ber heitið Refsiákvæði vegna íbúakosninga. Breytingin sem lögð er til felur í sér að í stað þess að búin sé til ný grein, 133. gr. a, komi ákvæðið einfaldlega á eftir 134. gr. sveitarstjórnarlaga og verði því 135. gr. Ástæðan er sú að í hinni nýju grein segir: „Kærum vegna brota á grundvelli 133. gr. og 134. gr. …“ og því er mjög einkennilegt að slíkt ákvæði sé sett á milli greina. Tillagan hefur verið borin undir dómsmálaráðuneyti og innviðaráðuneyti sem gera ekki athugasemdir við þessa breytingu. Ég vil bara tíunda að hér er um einfalda lagatæknilega breytingu og í raun bara fegrunaraðgerð á lögunum að ræða.