Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

íþrótta- og æskulýðsstarf.

597. mál
[15:08]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P):

Forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti 1. minni hluta, sem er mitt eigið. Ég tek það fram að ég styð markmið þessa máls. Ég get hins vegar ekki stutt það í þeirri mynd sem það er hér þar sem, líkt og kemur fram í nefndarálitinu, ekki var tekið tillit til ábendinga frá Persónuvernd við vinnslu málsins. Persónuvernd er sú stofnun sem Alþingi hefur falið það hlutverk að gæta mannréttinda borgaranna þegar kemur að vinnslu persónuupplýsinga og er það m.a. lögbundið hlutverk Persónuverndar að veita Alþingi ráðgjöf við löggjafarvinnunna, lagasetninguna.

Við meðferð málsins í allsherjar- og menntamálanefnd komu fram skýrar ábendingar frá Persónuvernd þess efnis að heimild til vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt frumvarpinu eins og hún er orðuð sé of víðtæk og ekki nógu skýrt afmörkuð. Það var alveg ljóst í umræðum í nefndinni og það er ljóst þegar nánar er að gáð að það er hægt að bregðast við athugasemdum Persónuverndar með því að skýra þessi ákvæði algerlega án þess að það rýri getu samskiptaráðgjafa samkvæmt lögunum til að sinna sínu hlutverki. Ég tek undir mikilvægi þess að sá aðili hafi allar þær heimildir sem hann þarf á að halda til að geta sinnt sínu gríðarlega mikilvæga hlutverki. Hins vegar skiptir máli hvernig hlutirnir eru orðaðir í lögum. Það skiptir máli hvernig við útfærum heimildir, t.d. til vinnslu persónuupplýsinga.

Athugasemdir Persónuverndar lutu annars vegar að því að heimildin væri ekki nógu skýrt afmörkuð. Það er ekki tilgreint hvaða upplýsingar má miðla hvert og í hvaða tilgangi. Þetta held ég að sé alveg skýrt í hugum nefndarmanna og í hugum þeirra sem standa að baki þessu frumvarpi þannig að það ætti að vera leikur einn að orða það í lögunum. Ég held því miður að ástæðan fyrir því að ekki náðist samkomulag í nefndinni um að gera það sé einfaldlega sú að fólk hafi ekki talið taka því að fara út í þá vinnu. Og reyndar held ég að það sé því miður ekki alltaf tekið nógu alvarlega sem kemur frá Persónuvernd og á það við í fleiri málum.

Hin athugasemdin sem kom frá Persónuvernd laut að aðkomu hins skráða, sem getur verið, ef við tölum bara í þessu samhengi, svo við tölum skiljanlegt mál, gerandi og þolandi, hvor þeirra sem um er að ræða. Það kemur ekki fram í lögunum hvernig aðkomu þeirra skuli háttað. Þetta er eitthvað sem Persónuvernd gerir athugasemd við. Hún fer ekki fram á að hinum skráða sé gert viðvart eða eitthvað slíkt, heldur eingöngu að það sé tekin afstaða til þess í lögunum hver aðkoma viðkomandi aðila er. Þetta er einnig að mínu mati eitthvað sem við hefðum getað orðað í lögunum, hefðum getað tekið á og brugðist þannig við ábendingum Persónuverndar algerlega án þess að rýra markmið laganna og án þess að valda neinum töfum á afgreiðslu þess sem er mikilvæg. Ég tek undir það.

Eins og nú er orðin venja í allsherjar- og menntamálanefnd þá fengum við ráðuneyti, í þessu tilviki mennta- og menningarmálaráðuneytið, til að bregðast við þeim umsögnum sem bárust um málið. Í viðbrögðum ráðuneytisins við umsögn Persónuverndar kemur í raun ekki annað fram en að ráðuneytið sé einfaldlega ósammála Persónuvernd. Má í rauninni orða það þannig á mannamáli að ráðuneytinu finnist þessar heimildir einfaldlega alveg nógu skýrar þó að Persónuvernd hafi sagt að þær séu ekki nógu skýrar. Þetta tel ég alls ekki viðunandi vinnubrögð og get þess vegna ekki stutt þetta mál eins og það er. Ég tel það mjög miður að við skulum ekki leggja meiri metnað í löggjafarvinnuna sem við erum að vinna hér á þessu þingi vegna þess að það skiptir máli hvernig hlutirnir eru gerðir.

Þetta er svo sem það eina sem kemur fram í minnihlutaáliti mínu og geri ég ekki breytingartillögur þar sem þetta krefst auðvitað ákveðinna ígrundunar og útfærslu og annars, en ég vek athygli á þessu og vona að við hér á hinu háa Alþingi getum farið að bera aðeins meiri virðingu fyrir þeim ábendingum sem koma frá stofnunum sem við höfum sjálf falið að gæta tiltekinna atriða á grundvelli sérþekkingar þeirra. Það er hjá Persónuvernd sem sérþekkingin á persónuvernd liggur, ef það gefur ekki augaleið. Þannig að það að ráðuneytið segist einfaldlega að vera ósammála Persónuvernd er ekki fullnægjandi rökstuðningur fyrir því að bregðast ekki með skýrari hætti við athugasemdum stofnunarinnar. Því miður tekur allsherjar- og menntamálanefnd í rauninni undir þessi orð ráðuneytisins í sínu nefndaráliti. Þar með finnst mér hafa svolítið vanrækt okkar hlutverk til að taka sjálfstæða afstöðu til þess hvernig við eigum að vinna okkar vinnu. Það er annað sem ég tel því miður víðtækara vandamál hér í vinnu okkar á þingi en kemur fram í þessu frumvarpi.

Þetta er svo sem það eina sem ég vildi sagt hafa. Ég mun sitja hjá við afgreiðslu þessa máls. Ég ítreka að ég tel mikilvægt að samskiptaráðgjafa æskulýðs- og íþróttastarfs verði faldar þær heimildir sem viðkomandi eru nauðsynlegar til að vinna sína vinnu, en ég tel að hér hafi verið óvarlega farið að.