virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt o.fl. (eftirlitsheimildir, endurgreiðslur og séreignarsparnaður). Helstu atriði frumvarpsins eru eftirfarandi:
Í frumvarpinu eru lögð til þrjú efnisatriði. Í fyrsta lagi eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt sem lúta að auknum úrræðum Skattsins í þeim tilgangi að bæta skil og eftirlit með þeim sem eru skráðir á virðisaukaskattsskrá. Í öðru lagi er lögð til lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts af vinnu manna við nýbyggingu, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis úr 60% í 35%. Um er að ræða lið í aðgerðum stjórnvalda til að bæta afkomu ríkissjóðs, draga úr þenslu og sporna gegn verðbólguþrýstingi og hækkun verðbólguvæntinga. Í þriðja lagi er lögð til heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar og úttektar viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar vegna öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði framlengd um eitt og hálft ár, eða til og með 31. desember 2024. Að óbreyttu fellur úrræðið úr gildi 30. júní 2023.
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur frammi.
Lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts vegna vinnu manna við nýbyggingu, endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis. Í 5. gr. frumvarpsins er lagt til að hlutfall þess virðisaukaskatts, sem byggjendur og eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt af vinnu manna á byggingarstað við nýbyggingu, endurbætur og viðhald húsnæðis til eigin nota fá endurgreitt, verði lækkað úr 60% í 35% frá og með 1. júlí 2023. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að aðgerðin sé liður í markmiðum stjórnvalda til að bæta enn frekar afkomu ríkissjóðs, draga úr þenslu og ná niður verðbólguvæntingum. Þá sé aðgerðinni ætlað að styðja við eitt af meginmarkmiðum Seðlabankans, þ.e. að stuðla að stöðugu verðlagi og því að árleg verðbólga verði að jafnaði sem næst 2,5%.
Í umsögn Samtaka iðnaðarins kemur fram að samtökin telji fyrirhugaða lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts til þess fallna að draga úr uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þá komi áformin til með að hækka kostnað við húsbyggingar, draga úr framboði íbúða sem komi fram eftir 2–3 ár, hækka verð íbúða, auka verðbólgu þegar áhrifin koma fram á húsnæðismarkaði og leiða til hærri vaxta. Í minnisblaði ráðuneytisins er ítarlega farið yfir efni umsagnarinnar og brugðist við einstökum efnisatriðum hennar. Meiri hlutinn vísar til þeirra sjónarmiða sem þar koma fram og undirstrikar að aðgerðin er m.a. til þess fallin að hægja á vexti heildareftirspurnar í hagkerfinu og draga úr verðbólgu. Það fari eftir aðstæðum hjá byggingaraðilum sjálfum og á íbúðamarkaði að hve miklu leyti aðilar kunni að sjá sér hag í því að draga úr fyrri byggingaráformum, bæði út frá kostnaði og tekjum af sölu íbúða. Muni áhrif ákvæðisins ráðast af því samspili. Meiri hlutinn telur mikilvægt að ekki dragi úr uppbyggingu íbúðarhúsnæðis enda á að auka enn frekar byggingu íbúða í almenna íbúðakerfinu úr 500 íbúðum árlega í 1.000 íbúðir árin 2024 og 2025. Auk þess verður 250 nýjum íbúðum bætt við fyrri áætlanir þessa árs og verða þær þá samtals tæplega 800. Þetta styður við aukið framboð á húsnæðismarkaði.
Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að samhliða lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts verði fylgst með því hvort breytingar verða sem leiði til aukinna skattundanskota.
Nefndin fjallaði einnig um það hvort tilefni væri til þess að undanskilja uppbyggingu almennra íbúða samkvæmt lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016, lækkuninni á endurgreiðsluhlutfalli enda væru þær almennt byggðar upp af óhagnaðardrifnum félögum. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að heimilt væri að veita stofnframlög til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Við útreikning á stofnvirði við byggingu íbúðanna væri m.a. tekið tillit til þess hvort virðisaukaskattur sé endurgreiddur af vinnu manna á byggingarstað. Sama ætti við um útreikning á stofnvirði við kaup almennra íbúða. Því myndi lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts vegna vinnu manna við nýbyggingu, endurbætur eða viðhalds almenns íbúðarhúsnæðis leiða til hækkunar á stofnvirði almennra íbúða sem nemur lækkuninni. Lækkunin ætti því ekki að leiða til neinnar skerðingar á stofnframlögum.
Í 6.–8. gr. frumvarpsins er fjallað um skattfrjálsa ráðstöfun viðbótariðgjalds til séreignarsparnaðar til að afla íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Þar er lagt til að ákvæði til bráðabirgða við lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, og laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, sem kveða á um heimild til skattfrjálsrar ráðstöfunar viðbótariðgjalds til öflunar íbúðarhúsnæðis til eigin nota verði framlengd til 31. desember 2024. Ákvæðin falla að óbreyttu úr gildi 30. júní 2023. Annars vegar er um að ræða heimild til ráðstöfunar séreignarsparnaðar inn á höfuðstól fasteignaláns sem tryggt er með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota og hins vegar útborgun á séreignarsparnaði til að afla íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Heimilt er samkvæmt ákvæðunum að ráðstafa allt að 500.000 kr. á ári vegna einstaklinga, en 750.000 kr. vegna hjóna eða einstaklinga sem uppfylla skilyrði samsköttunar. Við umfjöllun nefndarinnar komu fram sjónarmið þess efnis að tilefni kynni að vera til að endurskoða þá fjárhæð sem heimilt er að ráðstafa samkvæmt ákvæðinu með tilliti til breytinga á vísitölu neysluverðs, þannig að úrræðið haldi virkni sinni í hlutfalli við það sem lagt var upp með. Í minnisblaði ráðuneytisins kemur fram að ákvæðið sé til komið vegna stuðningsyfirlýsingar stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga frá lokum árs 2022 og gangi tillaga um hækkun viðmiðunarfjárhæða lengra en sú yfirlýsing. Þá myndi slík hækkun eingöngu gagnast einstaklingum sem væru yfir þeim tekjumörkum sem leiðir af núverandi hámarki. Meiri hlutinn tekur undir framangreind sjónarmið.
Meiri hlutinn leggur til breytingar tæknilegs eðlis sem ekki þarfnast sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Að framansögðu virtu leggur meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.
Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Ágúst Bjarni Garðarsson, Teitur Björn Einarsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.