Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

virðisaukaskattur o.fl.

952. mál
[15:35]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Guðbrandur Einarsson) (V):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér, eins og áður hefur komið fram, frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um tekjuskatt, eða um eftirlitsheimildir, endurgreiðslu og séreignarsparnað og þetta kemur frá fjármála- og efnahagsráðherra. Það er ýmislegt í þessu sem þarf að velta fyrir sér og efnahags- og viðskiptanefnd hefur skoðað málið frá mörgum hliðum. Margt af því sem þarna stendur er auðvitað eðlilegt og sjálfsagt mál og eðlilegt og rétt að styðja, sérstaklega það sem snýr að eftirlitsheimildum sem þurfa svo sannarlega að vera til staðar.

Við erum kannski hvað varðar m.a. breytingar á virðisaukaskatti ekki alveg samstiga. Við heyrðum það á hv. þingmanni Flokks fólksins að hún hefur önnur sjónarmið í málinu heldur en önnur, það eru að koma hér fram breytingartillögur um nýtingu á séreigninni, síðan eru að koma breytingartillögur um að það séu einhver félög sem fái að nýta 60% áfram í endurgreiðslu en ekki 35% eins og kemur fram í frumvarpinu.

Þegar maður horfir á þessa endurgreiðslu þá er hægt að nálgast þetta frá mörgum hliðum. Við erum í árferði þar sem er fyrirliggjandi skortur á húsnæði. Það liggur alveg fyrir að það er skortur á húsnæði. Það eru fleiri hundruð manns sem sækja um hverja einustu íbúð sem er til leigu. Byggingarkostnaður hefur vaxið verulega vegna þeirrar verðbólgu sem hér ríkir, laun hafa hækkað, þannig að þetta er allt á fleygiferð. Umsagnaraðilar hafa sagt að breyting af þessu tagi, sem er verið að nefna í þessu frumvarpi, muni hafa þau áhrif að byggingarkostnaður muni hækka. Einhverjir segja: Jú, framlegð þeirra er svo mikil akkúrat þessa stundina að þeir geta bara tekið þetta á sig og þurfa ekkert að hækka.

Síðan er verið að velta fyrir sér hvað varðar þau félög sem eru í raun og veru að þjónusta þau markmið sem við myndum vilja ná akkúrat á þessum tímapunkti og það er að byggja félagslegt húsnæði. Með hvaða hætti eigum við að nálgast það? Ég veit að hv. fulltrúi Samfylkingarinnar í efnahags- og viðskiptanefnd er með tillögur þar að lútandi.

En þegar við erum að horfa á fjármálaáætlunina þá er staðan bara þannig að nánast allir umsagnaraðilar sem veittu umsögn um áætlunina segja: Það er ekki nóg að gert. Ef maður leitar logandi ljósi að aðhaldsaðgerðum í þessari fjármálaáætlun þá sjáum við þessa aðhaldsaðgerð. Þarna er í raun og veru aðhaldsaðgerð sem gæti dregið úr þenslu en á sama tíma vinnur hún gegn því markmiði sem við þurfum að vera að horfa til, að það er skortur á húsnæði. Við erum alltaf í sömu súpunni aftur og aftur: Þensla, samdráttur, þensla, samdráttur, og ráðum aldrei neitt við neitt. Því er nú verr og miður.

Það sem ég vil reyndar gera athugasemd við hvað þetta varðar er að ég mun ekki geta stutt það að þessu verði viðhaldið vegna þess að Viðreisn hefur talað fyrir því að beitt verði meira aðhaldi en hingað til hefur verið gert og við þurfum svo sannarlega á því að halda.

Það sem ég geri einnig athugasemd við er að það er enginn frestur á þessu. Þetta á að skella á 1. júlí þannig að það er enginn frestur og fullt af fólki væntanlega farið af stað í góðri trú um að þetta úrræði sé fyrir hendi með þeirri endurgreiðslu sem hefur verið til staðar. En þarna á bara að skella þessu á. Við erum núna komin vel fram í júní þannig að það eru nokkrir dagar þangað til þetta á að taka gildi. Ég held að það sé varhugavert að veita ekki fólki ráðrúm til að laga sig að þeim breytingum sem við erum að setja fyrir fólk. Að því leyti geri ég athugasemdir við þetta en styð að öðru leyti að þetta sé því miður ein af fáum aðhaldsaðgerðum sem þessi ríkisstjórn er að boða.

Virðulegur forseti. Ég kem nú hingað upp af því ég er að leggja fram breytingartillögu vegna heimildar til að fá að ráðstafa séreigninni inn á íbúðalán. Mig langar núna að fá að lesa nefndarálit með breytingartillögu við frumvarpið sem er sögð frá 2. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar, sem er ég í þessu tilfelli, sem er svohljóðandi:

„Í því verðbólguástandi sem nú ríkir eru ráðstöfunartekjur almennings skertar. Vextir á fasteignalánum hafa víðast hækkað um 3–4 prósentustig á liðnu ári og nálgast það að hafa þrefaldast sé litið til þess tíma þegar vextir voru lægstir. Þetta leiðir til verulegs aukins kostnaðar fyrir fólk með venjuleg, óverðtryggð húsnæðislán á breytilegum vöxtum. Þessu til viðbótar mun stór hópur lántakenda, sem festu vexti þegar þeir voru hvað lægstir, brátt færast yfir á breytilega vexti. Um 4.500 manns munu lenda í því á þessu ári og enn fleiri á því næsta.

Á fundi fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands þann 7. júní 2023, vegna nýrrar yfirlýsingar hennar, varaði seðlabankastjóri við yfirvofandi þyngingu á greiðslubyrði lána og hvatti fólk til að huga að því að lengja lánstíma og breyta lánafyrirkomulagi. Þótt það dragi úr greiðslubyrði í hverjum mánuði leiðir það til aukins kostnaðar og minni eignamyndunar til langs tíma. Venjulegt fólk tekur kostnaðinn af verðbólgunni á sig af fullum þunga á meðan ríkisstjórnin þenur opinber útgjöld og vinnur gegn tilraunum Seðlabanka Íslands til þess að draga úr verðbólgu með hækkun stýrivaxta.

Í aðstæðum sem þessum er nauðsynlegt að verja heimilin í landinu. Leiði verðbólgan og stýrivaxtahækkanir til aukins greiðsluvanda almennings veldur það ekki aðeins skerðingu á ráðstöfunartekjum heldur einnig því að hærra hlutfall fjölskyldna mun missa húsnæði sitt. Það mun lengja tímann sem það tekur samfélagið að ná efnahagslegum bata og stöðugleika á ný.

Annar minni hluti leggur því til að við frumvarpið verði bætt ákvæði sem heimilar fólki að nýta viðbótariðgjald séreignarsparnaðar sem afborgun inn á óverðtryggt lán. Sú breyting er til þess fallin að fækka þeim sem lenda í verulegum greiðsluvanda vegna íbúðalána. Heimildin er sambærileg þeirri sem nú þegar stendur kaupendum fyrstu eignar til boða og mun því einnig tryggja aukið jafnræði milli fólks þegar kemur að ráðstöfun séreignarsparnaðar.

Annar minni hluti leggur því til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:

Við 6. gr. bætist tveir nýir stafliðir, er verði b- og c-liður, svohljóðandi:

b. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Þá er rétthafa á tímabilinu 30. júní 2023 til og með 31. desember 2024 heimilt að nýta iðgjald sem afborgun inn á óverðtryggt lán.

c. Við 1. málsl. 9. mgr. bætist: og á gjalddaga afborgana eftir því sem við á.“

Undir þetta nefndarálit með breytingartillögu skrifar sá sem hér stendur, Guðbrandur Einarsson.

Virðulegur forseti. Þetta skýrir sig í raun og veru alveg sjálft en kannski bara aðeins að hnykkja á þessu: Við erum búin að vera með þetta úrræði lengi eða nánast frá því eftir hrun, að fá að greiða inn á lánin okkar með þeirri eign sem við eigum í séreignarsjóðum upp að vissu hámarki en það ákvæði gilti bara inn á höfuðstól. En í dag er það þannig að þeir sem eru að kaupa í fyrsta skipti geta greitt af óverðtryggðu láni inn á höfuðstólinn eða valið að greiða inn á afborgunina sína.

Staðan í samfélaginu, eins og hér hefur verið nefnt, er sú að afborgun af láni getur hafa hækkað um 200.000 hjá fólki sem var með há lán. Þá spyr maður: Er það ekki tilraunarinnar virði að styðja við þá sem eru komnir í slíkar aðstæður, að heimila þeim, í stað þess að geta bara sett þetta inn á höfuðstólinn, að fá að nýta þetta til þess að setja inn á afborgunina? Afborgunin getur verið stór og mikill baggi á fólki og það er ákveðið réttlætismál að bæði fyrstu kaupendur og aðrir sem eru skuldsettir eða skulda af húsnæðisláni fái að sitja við sama borð hvað þetta varðar.

Þegar maður heyrir fréttir í fjölmiðlum um að fólk sé að fara að taka smálán til þess að bjarga sér fyrir horn þá verðum við með einhverjum hætti að bregðast við. Við hljótum að þurfa að bregðast við þegar við lesum fréttir af því að fólk sé að fara að taka smálán til að bjarga sér. Við erum að tala um frelsi til æðis og athafna. Af hverju fær fólk ekki að ákveða á hvaða hátt það ráðstafar sinni eign? Séreignarsparnaður er eign þess sem hefur lagt hann til. Af hverju má þá ekki viðkomandi nýta hann á þann hátt sem hann telur best fyrir sig í þeirri stöðu sem hann er í? Höfuðstóllinn er ágætur en hann dugar oft ekki til þegar fólk er komið í þá stöðu að afborganir af lánum hafa vaxið í veldisvexti og þess vegna vil ég hvetja hv. þingmenn til að samþykkja þessa breytingartillögu.