Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

virðisaukaskattur o.fl.

952. mál
[15:48]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp fyrst og fremst til að mæla fyrir breytingartillögu sem við í Samfylkingunni höfum lagt fram, og samflokksmaður minn, hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson, er einn með breytingartillögu tengda þessu. Þetta tengist pakka, verkefnalista, sem við í Samfylkingunni lögðum fram í núna í vor þar sem við erum að vekja athygli á vanda fólks í dag og að þær aðgerðir sem voru til að byrja með boðaðar með breytingu á fjármálaáætlun núna í vor myndu aðeins ná til næstu þriggja eða fjögurra ára. Það kom reyndar í ljós að þær aðgerðir voru engar þannig að það er svo sem kannski lítið mál að rökræða þær.

Eins og fleiri hv. þingmenn hafa bent hér á þá virðist sem aðalaðhaldsaðgerðin á þessu ári eigi að snúa að því að lækka hlutfall þess virðisaukaskatts sem hægt er að fá endurgreiddan vegna byggingarframkvæmda. Við í Samfylkingunni skiljum að hluta til þessa tillögu, þ.e. eins og hún snýr að almennri uppbyggingu á húsnæði sem er á einkamarkaði og fellur ekki undir félagslegt húsnæði. Það er vissulega spenna á markaðnum. Það vantar jú íbúðir, en það hafa líka ýmis gögn bent til þess að það sé veruleg arðsemi í greininni. Staðreyndin er sú að það er engin trygging fyrir því að svona skattafslættir leiti í lægra kaupverð, sérstaklega ef ekki er haldið sérstaklega utan um sölu eða leigu á slíkum íbúðum. Þannig að þegar þessi spenna er til staðar á markaðnum, þegar það er svona mikil arðsemi í byggingariðnaði, þá er mjög líklegt að þeir sem framkvæma muni nýta þennan afslátt fyrst og fremst til að auka arðsemi sína af uppbyggingunni en geti svo bara áfram selt á markaðsverði.

Það sem er hins vegar öðruvísi í kerfinu er fyrirkomulag almenna íbúðakerfisins sem okkar breytingartillaga gengur út á þar sem við erum að leggja til að að fallið verði frá þeirri ákvörðun að lækka endurgreiðsluna á virðisaukaskatti úr 60% í 35%, sér í lagi af íbúðum sem eru byggðar af óhagnaðardrifnum leigufélögum. Það er frekar einföld ástæða fyrir þessu vegna þess að við höfum séð, eins og fleiri hv. þingmenn hafa rætt um og það hefur komið skýrt fram hjá þeim aðilum sem standa fyrir uppbyggingu slíkra íbúða, að þetta getur hækkað byggingarkostnað þeirra íbúða verulega.

Munurinn á þeim byggingarkostnaði er að við vitum að vegna þess að þessi félög eru ekki hagnaðardrifin og ef við höldum kostnaði í lágmarki og drögum úr þeim þrýstingi þá leitar það í lægra leiguverð. Þetta er grundvallarmál á tímum sem þessum. Þetta er líka grundvallarmál ef staðan er þannig í byggingariðnaði að það er samkeppni um vinnuafl og erfitt að ráða fólk inn í greinina, að reyna að gera það ákjósanlegra fyrir verktaka og þá sem sýna uppbyggingu á húsnæði áhuga, að fara í uppbyggingu á almennum íbúðum frekar en öðrum íbúðum. Við í Samfylkingunni leggjum mikla áherslu á að það sé forgangsraðað í þágu slíkra íbúða þegar spennan á markaði er eins og hún er núna af því að við höfum ekki efni á því að bíða hvað það varðar.

Líkt og fleiri hafa bent á er þetta líka liður í því að aðstoða hæstv. ríkisstjórn í að ná markmiðum sínum í uppbyggingu á fleiri almennum íbúðum, þ.e. íbúðum sem eru óhagnaðardrifnar og eru því með lægra leiguverð. Það kom fram í máli ríkisstjórnarinnar — já, ég vil segja í máli ríkisstjórnarinnar vegna þess að það kom ekki fram í breytingartillögum ríkisstjórnarinnar — að það ætti að fjölga þeim íbúðum sem ætti að byggja vegna opinberra stofnframlaga. Það komu hins vegar engar breytingartillögur inn í fjármálaáætlun þar að lútandi. Þar er verið að færa eitthvert fé á milli. Við í Samfylkingunni ætlum auðvitað bara að treysta því að það verði vel að þessu staðið, en lykilatriðið er þá að það sé tryggt að kostnaður af þessum íbúðum fari ekki upp í grunninn.

Ég vil vekja athygli á, vegna þess að það er farið inn á þessar breytingar í nefndaráliti meiri hlutans, að í rauninni skiptir kannski litlu máli að endurgreiðslan lækki úr 60% í 35% vegna þess að við útreikning á stofnvirði við byggingu almennra íbúða sé tekið tillit til þess hvort vaskurinn er endurgreiddur af vinnunni eða ekki. Á mannamáli er í raun verið að segja: Þegar litið er til þess að byggja almennar íbúðir þá er bara skoðað hver byggingarkostnaðurinn er til að komast af stað og ríkið kemur inn í hluta af þeim kostnaði. Ef sá kostnaður hækkar þá leggur ríkið bara meira til. Þannig að þá skiptir litlu máli að verið sé að lækka endurgreiðslu á vaskinum vegna þess að ríkið leggur þá bara meira til stofnframlagamegin.

Það er margt við þetta að athuga, einkum tvennt. Í fyrsta lagi sú staðreynd að ef þetta sneri bara að þessu stofnframlagi væri augljóslega verið að fækka þeim íbúðum sem er hægt að byggja með stofnframlaginu vegna þess að það er föst tala sem er og verður ákvörðuð í fjárlögum fyrir uppbyggingu íbúðanna. Það hefur reynst erfitt að hækka þessa heildarupphæð sem á að fara í almenna íbúðakerfið, til að mynda til að taka mið af auknum byggingarkostnaði og fleiru. Þetta gerir það að verkum að það er hægt að byggja færri íbúðir. Þannig að ef þetta væri það eina sem ætti við þá myndi þetta samt fækka mögulegum íbúðum.

Í öðru lagi er staðreyndin auðvitað sú að ríkið fjármagnar ekki að fullu þessar íbúðir heldur bara að hluta til og sá hluti sem er ekki fjármagnaðar af hinu opinbera stendur auðvitað frammi fyrir hærri kostnaði. Þess vegna er það alvarlegt mál að ekki sé litið til þessara breytinga í nefndaráliti og í mögulegum breytingartillögum frá meiri hlutanum. Það er fyrst og fremst það sem ég vildi vekja athygli á í þessu samhengi.

Þetta er auðvitað risamál í viðureigninni við verðbólguna. Þetta er líka mikilvæg aðgerð í samhengi við leigubremsu, sem við höfum til að mynda talað fyrir í Samfylkingunni. Komið hafa misvísandi upplýsingar frá hæstv. ráðherrum ríkisstjórnarinnar, sem er reyndar ekki óalgengt, um hvað verið sé að gera í þessum leigubremsumálum. Í viðtali fyrr í vikunni lýsti hæstv. innviðaráðherra því yfir að það væri verið að vinna í leigubremsu og að mögulega yrði hún útfærð í sumar eða í haust. En hæstv. fjármálaráðherra hefur hálfpartinn gefið í skyn að þetta sé slæm hugmynd. Við skulum vona að hinn fyrrnefndi muni vinna þann slag vegna þess að við styðjum það auðvitað heils hugar að komið verði á leigubremsu. Ef farið verður í svoleiðis viðureign, ef reynt verður að halda leiguverði í skefjum, þá skiptir máli að það sé tryggt að það sé nægt framboð af íbúðarhúsnæði til leigu og þess vegna þarf að byggja nóg.

Að lokum vil ég benda á að fjármögnun að baki þessum aðgerðum á verkefnalistanum okkar er tryggð. Hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson ætlar að fara frekar yfir vaxtabótaaukann, sem er ein af þremur tillögum hjá okkur, sem eru vaxtabótaauki, leigubremsa og þessi ívilnun til uppbyggingar á almennum íbúðum. Við hefðum viljað sjá til að mynda fjármögnun koma inn í þetta úrræði sem sneri að því að draga úr tekjutilflutningi í skattkerfinu, hinu svokallaða ehf.-gati, sem felst í einföldu máli í því að koma í veg fyrir að fólk greiði og telji ranglega fram launatekjur sem fjármagnstekjur. Þetta er þekkt fyrirbrigði sem hefur verið tekið fyrir í löndunum í kringum okkur.

Einföld leið hefur verið boðuð, m.a. af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, til þess að loka fyrir þetta gat. Útreikningar á vegum Alþýðusambandsins hafa gefið til kynna að þetta gætu verið 3–8 milljarðar sem ríkissjóður verður af. Þarna er ekki um skattbreytingar að ræða heldur er einfaldlega verið að tryggja að fólk borgi réttan skatt af launatekjum sínum. En vegna þess að það þingmál er ekki komið inn þá förum við þá leið að leggja fram breytingartillögu um fjármagnstekjuskatt sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson mun fara betur yfir hér á eftir.