virðisaukaskattur o.fl.
Frú forseti. Ég tek undir allt það sem fram kom í máli hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur og ég vil hvetja þingheim einlæglega til að virða fyrir sér breytingartillöguna sem hv. þingmaður mælti fyrir rétt í þessu og íhuga alvarlega að greiða henni atkvæði sitt vegna þess að þetta er alveg gríðarlega mikilvæg aðgerð til þess einmitt að koma í veg fyrir að hærri byggingarkostnaður leiti beint út í leiguverð í almenna íbúðakerfinu.
Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um tekjuskatt. Tilgangur þessa frumvarps er að meginefninu til annars vegar að ráðast í sértæka aðgerð til að sporna gegn þenslu á þessu ári og hins vegar er verið að framlengja ákveðinn húsnæðisstuðning í formi skattfrjálsrar ráðstöfunar séreignarsparnaðar. Í ljósi þess að hér er verið að eiga við tekjuskattslagabálkinn og í ljósi þess hver markmið þessa frumvarps eru þá töldum við eðlilegast, frekar en að vera með hina og þessa breytingartillöguna við fjármálaáætlun eða við frumvarp hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sem snertir einvörðungu á almannatryggingakerfinu, að leggja fram okkar breytingartillögur sem lúta að húsnæðisstuðningi og fjármögnun aukins húsnæðisstuðnings við þetta tiltekna mál. Þetta eru breytingar sem ég mun fara betur yfir á eftir sem fela í sér breytingar á tekjuskattslögum.
Eins og ég kom inn á felur þetta frumvarp í sér aðgerð sem er til þess fallin að sporna gegn þenslu á miðju ári og það er eitthvað sem við höfum kallað eftir mánuðum saman. Við höfum krafið ríkisstjórnina um svör við því hvernig hún ætli að taka á verðbólgu og hvað hún ætli að gera núna strax til að sporna gegn þenslu og til þess að slá á verðbólguvæntingar. Þá hefur helst kannski tvennt verið nefnt. Það er annars vegar þessi aðgerð sem tekur gildi núna um mitt þetta ár, lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts, en framan af var það nú helst fyrirbæri sem kallast matvörugáttin sem var nefnt sem sérstök aðgerð til að halda niðri verðlagi.
Mig langar aðeins að leggja lykkju á leið mína og víkja að þessu vegna þess að ég hef haft talsverðar áhyggjur af þessari blessuðu matvörugátt. Mér barst nefnilega til eyrna fyrir nokkrum misserum að Samkeppniseftirlitið hefði gert alvarlegar athugasemdir við áform ríkisstjórnarinnar um að koma á fót þessari matvörugátt. Þess vegna lagði ég fram fyrirspurn til hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra um þessi mál í apríl síðastliðnum þar sem ég spyr:
1. Hvernig miðar vinnu við að koma upp sérstakri matvörugátt þar sem „neytendur munu geta fylgst með daglegu matvöruverði á einum stað“, sbr. tilkynningu á vef Stjórnarráðsins 10. febrúar 2023?
2. Mun matvörugáttin sýna verð á sömu tilgreindu vörutegundunum yfir tíma?
3. Var haft samráð við Samkeppniseftirlitið og sjónarmiða þess óskað um áhrif matvörugáttar á samkeppni áður en gerður var samningur um stuðning ríkisins við verkefnið? Ef svo er, hvaða sjónarmiðum kom Samkeppniseftirlitið á framfæri og mun þróun og útfærsla matvörugáttar taka mið af þeim?
Eftir að ég lagði fram þessa fyrirspurn þá hefur það verið raunar haft eftir forstjóra Samkeppniseftirlitsins í fjölmiðlum að hann hefði haft verulegar áhyggjur af því að stjórnvöld væru með þessa matvörugátt á takteinunum, að hún gæti hreinlega orðið til þess að stuðla að verðsamráði á matvörumarkaði. Að með þeirri aðferðafræði, sem virtist lagt upp með, væri beinlínis hætt við því að matvörugáttin myndi búa til einhvers konar verðgólf frekar en að þjóna einhverjum mikilvægum tilgangi í þágu neytendaverndar og verðlagseftirlits. Þetta var eitthvað sem forstjóri Samkeppniseftirlitsins kom á framfæri við ráðherra ríkisstjórnarinnar. En á það var ekki hlustað. Matvörugáttin var opnuð án þess að tekið væri neitt tillit til sjónarmiða Samkeppniseftirlitsins sem varaði við því að þarna væru stjórnvöld, með sérstakri íhlutun, jafnvel að grípa til aðgerða sem gætu híft upp vöruverð.
Nú er þessi matvörugátt búin að opna, það gerðist fyrir tveimur dögum, og það eru strax farnar að berast fréttir af því að verð á þeim vöruflokkum sem eru sýndir í matvörugáttinni hafi skotist upp um það leyti sem hún var opnuð. Það virðist vera, og það eru merki um það, að þessi blessaða matvörugátt, sem framan af átti að vera eina framlag ríkisstjórnarinnar til að sporna gegn verðbólgu á þessu ári, þjóni beinlínis öfugu hlutverki og geti spornað gegn viðleitni til að halda niðri vöruverði. Þetta finnst mér með miklum ólíkindum. Ég er auðvitað að leggja lykkju á leið mína með því að tala um þetta hér í umræðu um þetta tiltekna mál, sem snýr að annarri aðgerð sem snýst um að sporna gegn þenslu og halda niðri verðlagi til lengri tíma, en ég get ekki orða bundist. Ég vil hvetja hæstv. ríkisstjórn til að fara þess á leit við þann aðila sem hannaði og kom upp þessari matvörugátt að loka henni hreinlega í bili til að tryggja að þetta fari ekki að hafa alvarlegar og ankannalegar afleiðingar á matvörumarkaði, að gera þetta kannski meðan áhrifin af þessu hafa ekki verið greind nægilega og fyrst það gerðist augljóslega að ekki var hlustað á Samkeppniseftirlitið í þessu máli. En þetta var útúrdúr.
Hv. þm. Kristrún Frostadóttir mælti hér fyrir breytingartillögu sem lýtur með beinum hætti að lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts og felur í sér sérstaka ívilnun þegar kemur að nýbyggingu þeirra íbúða sem falla undir lög um almenna íbúðakerfið. Í þessu samhengi, eins og reyndar hv. þm. Kristrún Frostadóttir fór yfir hér áðan, þá verður auðvitað að hafa í huga að ekki eru nema örfáir dagar síðan hæstv. ríkisstjórn boðaði stóraukna húsnæðisuppbyggingu, bæði aukin hlutdeildarlán og aukna uppbyggingu í almenna íbúðakerfinu. Ég tel að það sé að vissu leyti verið að vinna gegn slíkum áformum ef við ætlum um leið að þyngja byggingarkostnaðinn með því að láta lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts, sem er beinlínis skattahækkun, taka til nýbyggingar á almennum íbúðum. Þannig að ég hvet, eins og áður sagði, hæstv. ríkisstjórn og hv. þingmenn stjórnarliðsins í salnum til að styðja þessa mikilvægu breytingartillögu um að nýbygging almennra íbúða verði tekin út fyrir sviga til þess að stuðla að markmiðum sem ég held að við séum öll hér í þessum sal sammála um, að halda dampi þegar kemur að uppbyggingu hagkvæms húsnæðis á komandi árum.
Ég lagði hins vegar fram aðra breytingartillögu við þetta mál sem tilheyrir sama heildarpakkanum og Samfylkingin kynnti hér í byrjun vikunnar, verkefnalistanum fyrir þinglok; vaxtabótaauka, leigubremsu og ívilnun til uppbyggingar. Það sem ég mæli hér fyrir er tillaga um sérstakan vaxtabótaauka. Við leggjum til að heimilin fái greiddan sérstakan vaxtabótaauka árið 2023, að þessi stuðningur verði eigna- og tekjutengdur og veittur í formi eingreiðslu sem getur mest orðið 200.000 kr. fyrir einstakling og 350.000 kr. fyrir hjón eða sambýlisfólk og einstæða foreldra. Grunnur vaxtabótaaukans reiknast sem 25% af vaxtagjöldum vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota en frá honum dragast 4% af tekjuskattsstofni. Þá skerðist vaxtabótaaukinn hlutfallslega fari eignir að frádregnum skuldum fram úr 12 milljónum hjá einstaklingi og 20 milljónum hjá hjónum og sambýlisfólki og fellur niður við tvöfalda þá fjárhæð.
Ég vil í þessu samhengi nefna að tekjutengingin er það skörp í þessu að líklega kemur ekki nema í mjög sjaldgæfum tilvikum til þess að þessi eignarskerðingarmörk komi til framkvæmda. Það sem skiptir máli hér er að þetta er mjög markviss stuðningur. Þetta er stuðningur sem einvörðungu er beint að þeim heimilum sem eru bæði með mjög þunga greiðslubyrði og eru tekjulág. Önnur heimili munu ekki njóta þessa vaxtabótaauka, enda myndi það vinna gegn markmiðum okkar um að ná niður verðbólgu, að sporna gegn þenslu og að styðja við Seðlabankann í þeirri viðleitni.
Fjármálaráð hefur kallað eftir markvissum tilfærslum til þeirra sem bæði eru skuldsettir og tekjulágir og ráða þannig illa við núverandi aðstæður. Þetta er bein tilvitnun í álitsgerð fjármálaráðs um fjármálaáætlun til næstu fimm ára og reiknireglur vaxtabótaaukans sem ég fór hér yfir tryggja að stuðningurinn renni einvörðungu til íbúðareigenda í neðri hluta tekjustigans og ekki til heimila sem eru með sterka eiginfjárstöðu. Tilgangurinn með því að veita þennan vaxtabótaauka er auðvitað sá að bæta upp fyrir þá niðurníðslu eða þá grotnun á vaxtabótakerfinu sem hefur átt sér stað á undanförnum árum þar sem eignarskerðingarmörk hafa ekki fylgt fasteignaverði og ekki fylgt verðlagsvísitölu og fyrir vikið hefur þetta kerfi orðið að eiginlega engu, ósköp litlu smælki.
Til viðbótar við þessa eingreiðslu sem við erum hér að leggja til þá köllum við eftir því að eignarskerðingarmörk vaxtabóta hækki um 33% á næsta ári, enda hafa þessi mörk dregist aftur úr þróun fasteignaverðs. Við lögðum fram breytingartillögu í desember síðastliðnum um 50% hækkun á eignarskerðingarmörkum vaxtabóta. Sú tillaga var samþykkt og skiptir miklu máli fyrir fjölmörg heimili sem eru með þunga greiðslubyrði og ekki háar tekjur. Við leggjum til að haldið verði áfram á þeirri vegferð meðan heimilin eru að ganga í gegnum þessa erfiðleika.
Þessar tillögur eru að fullu fjármagnaðar. Hv. þm. Kristrún Frostadóttir kom inn á það hér áðan að við hefðum viljað leggjast sem allra fyrst í aðgerðir til að loka ehf.-gatinu sem svo hefur verið kallað og við munum auðvitað ýta á eftir ríkisstjórninni og hvetja hana til dáða hvað það varðar. En meðan þetta hefur ekki komið til framkvæmda þá leggjum við til að fjármagnstekjuskattur hækki úr 22% í 25%. Samkvæmt útreikningum sem fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur látið vinna, að minni beiðni í fyrra í gegnum efnahags- og viðskiptanefnd, skilar slík hækkun á bilinu 4–5 milljörðum í ríkissjóð og vegna frítekjumarks af vaxtatekjum og tekjum af hlutabréfaeign þá lendir svona hækkun á skattprósentunni nær einvörðungu á tekjuhæstu 10% landsmanna. Þetta eru skynsamlegar og hnitmiðaðar aðgerðir í þágu heimila, í þágu tekjulægri heimila sem skulda mikið og þær eru fjármagnaðar með hóflegri hækkun fjármagnstekjuskatts á breiðustu bökin í samfélaginu.