Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.

1156. mál
[16:27]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Ég verð nú að segja að mér finnast rökin sem færð eru fram fyrir þessu frekar léleg; að bera því fyrir sig að dómarar á Íslandi haldi ekki sjálfstæði ef þeir falla undir þessi lög eins og þeir féllu áður undir kjararáð, ásamt okkur þingmönnum; og við vitum allt um það hvað okkur fannst um það. En mér finnst það skrýtið að það komi úr ranni Pírata að þetta fólk í efri þrepum tekjustigans í þjóðfélaginu — forseti Íslands tjáði sig um þetta árið 2016 og aftur var viðtal við hann núna þar sem hann segist ekki vera að kalla eftir þessu. Það hefur komið fram, eins og hv. þingmaður þekkir, að ekki þarf að tryggja að kaupmáttur krónunnar haldist óbreyttur gagnvart forsetanum. En mér finnst það skrýtið, með hliðsjón af greinargerð sem fylgir þessum rökstuðningi, hvað varðar þá sem eru meira að segja talsvert hærra launaðir en þingmenn, að Píratar standi hér fyrir því að þessir aðilar eigi ekki, undir þeim formerkjum að þeir verði að halda sjálfstæði sínu, að sýna ábyrgð í því ástandi sem ríkir í samfélaginu og sýna með því stuðning. Nú eru þessi laun ekki orðin að veruleika eins og síðast þegar gripið var inn í og dómarar unnu mál þess efnis líklega vegna þess, eða sú sem þá fór í mál. Við eigum því ekki hættu á því a.m.k. að það sé ástæðan fyrir því að dómarar fari í mál.

Ég vil einfaldlega spyrja hv. þingmann: Er eðlilegt að efstu lögin í samfélaginu, sem þingmanni verður oft tíðrætt um — í þessu tilfelli eru það akkúrat þessir embættismenn — taki ekki þátt í þessu með okkur?