breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Virðulegur forseti. Í fyrsta lagi var forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, á þeirri skoðun fyrir tveimur vikum að það ætti ekkert að rugla í þessu. Það er ekki lengra síðan hún skipti um skoðun varðandi það hvort grípa ætti inn í þessi lög. Og hver voru rökin fyrir því að ekki ætti að grípa inn í þau? Jú, að þetta væri kerfi sem væri búið að koma á með gagnsæjum hætti og það ætti að gilda og því ætti ekki að breyta. Hvers vegna skipti hún um skoðun? Jú, vegna þess að mikill pólitískur þrýstingur var lagður á hana, eins og á okkur öll, að þiggja ekki launahækkun af þessari stærðargráðu í þessu árferði. Þetta var rökstuðningurinn sem beitt var gegn forsætisráðherranum og pólitísku stéttinni.
Ef greinargerð okkar er lesin gaumgæfilega þá segir það sína sögu að það er alltaf í kjölfarið á gagnrýni á laun kjörinna fulltrúa sem gripið er inn í launakjör allra hinna stéttanna sem er búið að hengja við okkur með þessum pakka. Og hvað segir það okkur um hversu vel þessi pakki virkar yfir höfuð, hv. þingmaður? Hann gerir það ekki vegna þess að hann verður alltaf bitbein í samfélaginu út af okkar launakjörum, ekki annarra.
Hvað varðar dómara og saksóknara verð ég nú að segja að það kom mjög skýrt fram fyrir nefndinni og hjá öllum gestum nefndarinnar, og mér finnst leiðinlegt að þetta sé ekki rætt betur í nefndaráliti meiri hlutans, að þeir hagaðilar sem þarna eru undir eru mjög mótfallnir þessu og það kæmi mér ekki á óvart að þeir myndu leita réttar síns. Ég veit alveg að það eru líka efasemdir meðal stjórnarliða um hvort þessi lagasetning standist. Ég held að það eigi bara að láta á það reyna. Við viljum hafa uppi varúðarsjónarmið þegar kemur að því að standa vörð um launakjör forseta Íslands, dómara, saksóknara og annarra sem telja sig hafa lögbundnar væntingar um að fá þessa launahækkun eftir þessari forskrift og við teljum að endurtekin pólitísk afskipti af launum þeirra séu ekki ásættanleg.