breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Frú forseti. Þetta frumvarp, eins og fyrirkomulagið var og er, á við um alla í hæstu lögunum. Mér finnst rökstuðningur hv. þingmanns ekki halda. Hv. þingmaður er beinlínis að segja að æðstu embættismenn þjóðarinnar megi hækka af því að þeir hafi lögbundnar væntingar til þess að fá að hækka í launum. En af því að þingmenn eru góð skotmörk þá sé allt í lagi að lækka þá. Mér finnst þetta bara ekki halda.
Ég tek undir það með hv. þingmanni að við þurfum að endurskoða það kerfi sem hér er undir. Við töldum, þegar það var endurskoðað síðast, að það væri orðið betra en það var. En frá því að ég byrjaði á þingi hefur það ævinlega verið þannig að þegar laun þingmanna hafa breyst hefur verið um það deilt af því að almenningur hefur mjög misjafnar skoðanir á því hver laun þingmanna eigi að vera og hvort þeir eigi yfir höfuð að fá borgað fyrir vinnunna. En það er bara eins og það er. En það er alveg með ólíkindum að hlusta á það hér að þeir sem eru í hærri tekjulögunum í samfélaginu, af því að þeir eru ríkisstarfsmenn og vegna þess að þeir eigi að vera óháðir þinginu, þurfi ekki að taka þátt í því að taka ekki viðbótarlaunahækkun nema upp á 2,5%. Bara af því þeir eru dómarar eða saksóknarar þá séu það eðlilegar væntingar að þeir hækki miðað við lögin eins og þau eru.
Virðulegur forseti. Mér finnst þingmaðurinn ekki vera að færa hér fram sannfærandi rök fyrir því og mér finnst áhugavert ef kjósendur Pírata eru sammála því að þessir aðilar hafi ekki borð fyrir báru til þess að taka einungis 2,5% launahækkun eins og gert er ráð fyrir að við hin gerum.