breyting á ýmsum lögum til samræmis við verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður talar hér eins og dómarar og saksóknarar séu einhverjir embættismenn úti í bæ sem geti bara gjört svo vel og deilt sömu kjörum og allir aðrir. Það er nú bara þannig að það eru ákveðin viðmið og ákveðnar reglur í kringum launakjör dómara og saksóknara. Það er einmitt til þess að gæta að óhæði þessara embættismanna, dómara og saksóknara. Það er ekki bara ég sem hér stend og Píratar sem erum með einhvern hræðilegan málflutning í þessu. Ég vísa bara í umsögn frá Dómarafélaginu sem er að vísa í dómafordæmi máli sínu til stuðnings. Mér finnst ekki (BjG: Það á ekki við núna.) æskilegt að við verðum í málaferlum langt fram eftir næsta ári og á árinu þar á eftir með áfrýjanir um hvort þessi lög sem við erum að setja núna standist. Mér finnst ekki góður bragur á því. Mér finnst bara betra að sleppa því. Það er vísað í dómafordæmi og talað um að til þess að breyta eða hafa afskipti af kjörum dómara þurfi að fara fram mjög yfirvegað mat á þörfinni fyrir því. Og ég get ekki sagt, miðað við undirbúning og málsmeðferð þessa máls, að neitt af þeim skilyrðum sem þarna eru talin upp eigi við. Þetta er ekki vel undirbúið, þetta er ekki vel ígrundað, þetta eru pólitísk viðbrögð við pólitískum þrýstingi og þau viðbrögð eiga ekki að hafa áhrif á launakjör dómara, enda erum við þá bara að bjóða hættunni heim.