Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

almenn hegningarlög.

45. mál
[16:53]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Kanarífuglar eru viðkvæmari fyrir loftmengun en fólk og sagan segir að kolanámumenn hafi tekið með sér kanarífugla í búri niður í djúpar námur. Ef og þegar þeir dóu flýttu mennirnir sér upp á yfirborðið því að þeir vissu að annars færu þeir sömu leið og fuglinn. Ari Shaw, hjá rannsóknasetrinu Williams Institute við Kaliforníuháskóla í Los Angeles, segir réttindi hinsegin fólks jafn mikilvæg lýðræðinu og kanarífuglinn er kolanámumönnunum. Ef þau eru kæfð er lýðræðið í hættu.

Pólitískt bakslag gegn réttindum hinsegin fólks ryður brautina fyrir vaxandi forræðishyggju og afturhaldssemi víða um heim. Það er augljóst þegar litið er til þess hverjir eru við stjórnvölinn í þeim löndum sem undanfarið hafa gripið til fordæmalausra árása á hinsegin fólk, árása sem að mörgu leyti eiga helst hliðstæðu við þá hræðilegu atburðarásir sem við þekkjum frá síðari heimsstyrjöld og frá ríkjum Austur-Evrópu á tímum sovétismans þegar mannréttindi tiltekinna hópa voru fótum troðin með skelfilegum afleiðingum, svo dæmi séu tekin. Það er líka augljóst þegar litið er til þess hvers konar hópar eru í fararbroddi þessara árása. Tengslin við pólitíkina eru svo líka augljós þegar litið er til þess hvar þessi afturhaldsöfl eiga ekki erindi sem erfiði. Það er þar sem lýðræðið stendur sterkum fótum, þar sem frelsi og mannréttindi þykja sjálfsagður og ófrávíkjanlegur þáttur samfélagsins. Þannig samfélag er Ísland og ég trúi því að við munum enn og aftur staðfesta það með því að veita þessu mikilvæga máli brautargengi hér í dag, að við munum staðfesta breytingar á almennum hegningarlögum sem gera það refsivert að láta einstakling undirgangast svokallaða bælingarmeðferð með nauðung, blekkingum eða hótunum í þeim tilgangi að bæla eða breyta kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu, að við munum staðfesta að það má ekki skaða fólk, þvinga fólk eða meiða fólk til að fá það til að passa inn í heimsmynd sem hentar einhverjum öðrum en því sjálfu, þvinga, skaða og meiða fólk til að fá það til að vera öðruvísi en það er, til að vera eins og einhverjir aðrir vilja að það sé eins og einhver fámennur og frekar hópur heimtar af því að sá hópur hræðist einhverra hluta vegna heim þar sem öllum er frjálst að vera það sem þeir eru. Þeir hræðast heim þar sem slík mannréttindi eru fyrir alla. Það er þess vegna sem ég lagði þetta mál fram, er fyrsti flutningsmaður að þessu máli, með góðum stuðningi kollega minna hér í þingsal.

Málið hefur verið mjög vel unnið í allsherjar- og menntamálanefnd, eins og Helga Vala Helgadóttir, hv. þingmaður og framsögumaður málsins, fór yfir hér áðan. Það sem einna helst virðist hafa valdið misskilningi í meðförum málsins eða öllu heldur í umfjöllun, ekki endilega innan nefndarinnar heldur í tengslum við meðferð málsins, er að með þessu máli sé verið að gera það refsivert að foreldrar eigi samtöl við börnin sín eða þá að læknisfræðilega viðurkenndar meðferðir falli undir bælingarmeðferðir. Það er algjörlega fráleitt. Það er algjörlega skýrt og greinilegt að bælingarmeðferðir eru ekki byggðar á læknavísindum. Þær eru meðferðir sem byggja á einhverju allt öðru en vísindalegum grunni og miða að því að hafa áhrif á upplifun einstaklings af eigin kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu, og eiga ekkert skylt við læknisfræðilega meðferð.

En til að bregðast við athugasemdum refsiréttarnefndar og umboðsmanns barna skerpti allsherjar- og menntamálanefnd á ýmsum skilgreiningum, líkt og framsögumaður máls fór yfir áðan, til þess að tryggja þessi misskilningur sé algerlega út af borðinu. Á nefndarálitinu, þar sem mælt er með því að málið verði samþykkt að gefnum breytingum, eru sjö af níu nefndarmönnum og áheyrnarfulltrúi nefndarinnar er því líka samþykkur. Þessir átta þingmenn koma úr sjö þingflokkum. Stuðningurinn er því áþreifanlega og gleðilega víðtækur.

Frú forseti. Þegar ég lagði málið fram fékk ég gríðarlega sterk og jákvæð viðbrögð. Ég sagði þá og ég segi aftur að ég geymi með mér frásagnir sem mér var trúað fyrir af fólki sem hefur verið misþyrmt, andlega og líkamlega, í þeim tilgangi að troða því inn í ramma sem er öðru fólki þóknanlegur. Einn og einn af þessum hugrökku einstaklingum hefur þó síðan komið fram og sagt sögu sína. Önnur viðbrögð voru líka fyrirsjáanleg, að þetta frumvarp hlyti að vera óþarfi. Ég skil vel að fólk sem ekki þekkir til eigi erfitt með að trúa því að svona athæfi viðgangist hér á landi en jafnvel þar er skautað yfir aðalatriði málsins sem er að misbeiting af þessu tagi, svonefndar bælingarmeðferðir, varðar ekki við lög núna. Því erum við vonandi að breyta hér í dag, enda hefur Ísland á alþjóðavettvangi ítrekað lýst yfir andstöðu við slíkar meðferðir, t.d. á fundi mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna sumarið 2020 þar sem fjallað var um skýrslu ráðsins um alvarlegar afleiðingar bælingarmeðferða á hinsegin fólki.

Frá því að ég lagði málið fram hefur þróunin þegar kemur að málefnum hinsegin fólks því miður verið á þann hátt að það er rétt að tala um bakslag. Ég segi rétt því að eins vont og mér þykir að nota þetta orð, bakslag, í samhengi við stöðu hinsegin fólks hér á landi þá þykir mér enn verra ef við skellum skollaeyrum við varúðarorðum þeirra sem best þekkja til og látum eins og það sé einhver óhemjuskapur í fólki að benda á bakslag því að við stöndum svo vel. Við lifum þannig tíma að það er óróleiki, það eru uppþot, það er stríð og það er sótt að frjálsræði og frelsi fólks og okkar lýðræðislegu gildum mjög víða, ekki bara í fjarlægum heimsálfum heldur líka hér í Evrópu. Það er full ástæða til að tengja þessa punkta saman. Þeir segja mikilvæga sögu. Bakslag í málefnum hinsegin fólks kemur ekki úr neinu tómarúmi. Það er nátengt sókn að sjálfsákvörðunarrétti kvenna. Við getum tengt það við aðför að jafnrétti kynjanna og við getum tengt það við innrás í frjálst lýðræðisríki. Þetta tengist allt því sama; þörfinni til að halda fólki í ótta, að búa til sameiginlega óvini, að halda fólki uppteknu við annað en huga að því hvernig einstaka stjórnvöld geti best staðið undir þeirri frumskyldu sinni að tryggja hag allra þegna sinna. Það er vegna þessa sem ég nefni bakslag, jafn illa og mér er við að tala um það, vegna þess að við stöndum svo lagalega vel hér. Við verðum að þora að tala um þetta eins og það er og vera ekki svo bláeyg að halda að við séum í fyrsta lagi ein að kljást við þetta og í öðru lagi að þetta skiptir litlu máli, þetta sé bara einhver afmarkaður og jaðarsettur hluti samfélagsins.

Það er einfaldlega þannig að núna er hinsegin fólk í brjóstfylkingunni í ákveðinni baráttu fyrir frelsi einstaklingsins og sú barátta varðar okkur öll. Það er ágætt að rifja upp hérna að þótt mér finnist það hafa verið fyrir einhverjum kynslóðum síðan þá eru ekki nema 15 ár síðan samkynhneigð hjónabönd voru leyfð hér á landi. Ég man vel og við munum fleiri þær dómadagsspár sem flæddu yfir samfélagið, gott ef hjónabandið sem stofnun var ekki ónýtt. Ég veit ekki betur en raunveruleikinn hafi afsannað þær spár. Gagnkynhneigt fólk hélt áfram að gifta sig, í bunkum. Eini munurinn er að samkynhneigt fólk fær líka að gifta sig núna, og gerir það í bunkum. Það er nefnilega þannig með réttindi að það tekur ekki réttindi af neinum þó að einhver annar fái að njóta þeirra líka. Það er það fallega og jákvæða við réttindi en getur stundum flækt myndina.

Í lokin langar mig hér að færa þakkir. Ég talaði áðan um að á Íslandi stæði lýðræðið styrkum fótum þar sem frelsi og mannréttindi þykja sjálfsögð og ófrávíkjanlegur þáttur samfélagsins. Ferðalag þessa máls hér í þinginu er fallegt dæmi um það og þar hafa margir lagt hönd á plóg, félagar mínir í Viðreisn sem samþykktu að þetta yrði forgangsmál okkar í vetur, kollegar mínir í stjórnarandstöðunni sem studdu einróma að þetta mál yrði eina þingmannamál stjórnarandstöðunnar þegar ljóst var að ekki gæfist tími eða svigrúm fyrir fleiri slík mál. Þingflokksformenn stjórnarflokkanna unnu að þeirri niðurstöðu og hlutu stuðning sinna flokka til þess. Allsherjar- og menntamálanefnd vann málið mjög vel, eins og sjá má af nefndaráliti nefndarinnar, og tók tillit til mikilvægra athugasemda og hugleiðinga þar og nefndinni til mikilvægrar aðstoðar var síðan starfsfólk, sérstaklega þingflokks Viðreisnar og Sjálfstæðisflokksins og svo starfsfólk dómsmálaráðuneytisins. Að lokum langar mig að þakka formanni nefndarinnar, hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, fyrir að veita málinu gott brautargengi, en það er vægast sagt hægt að segja að mjög mörg mál hafi ratað til þeirrar nefndar í vetur og það var því ekki sjálfsagt. Og svo vil ég auðvitað þakka framsögumanni, hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur.

Ég vona að þessi góða málsmeðferð og víðtæki stuðningur sem þessi saga málsins í gegnum þingið til þessa segir okkur dugi til þess að það verði samþykkt hér í dag. Það eru tveir hópar sem þetta mál skiptir miklu máli. Það er auðvitað hinsegin samfélagið og allir sem þeim tengjast og síðan öll þjóðin í heild. Fyrir báða hópana er þetta mikilvægt og gott mál.