almenn hegningarlög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil bara ítreka að ég held að það sé mjög mikilvægt að fylgja þessu eftir sem fram kemur hér um þessa frekari vinnu vegna þess að ég held að ég geti alveg fullyrt það hér að hinar fjölmörgu ólíku fagstéttir heilbrigðisstarfsfólks eru mjög meðvitaðar um skyldur sínar og fagvitund þeirra er mjög sterk og er raunverulega að finna í öllum þessum lögum sem ég fór hér yfir í fyrra andsvari. Ég held að það væri mjög til bóta að fylgja eftir því sem kemur fram í áliti nefndarinnar, að eiga þetta samtal við stofnanir og stéttir heilbrigðisstarfsmanna.