almenn hegningarlög.
Frú forseti. Já, það var svo sem ekki bein spurning fólgin í seinna andsvari, en bara rétt til að árétta það þá held ég að það sé gott fyrir alla hlutaðeigandi að það sé haldið utan um þetta. Ég held nefnilega líka að það sé ávinningur fyrir akkúrat heilbrigðisstarfsfólk, það fagfólk sem starfar sérstaklega með fólki sem viðkvæmast er í þessari stöðu, að fá skýra og greinargóða mynd af stöðunni þannig að það getur ekki annað en bætt, ekki bara málið heldur líka aðstæður fólks. Þannig að þetta er eitthvað sem við tökum með okkur.