Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

almenn hegningarlög.

45. mál
[17:10]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegur forseti. Hv. framsögumaður þessa máls, Helga Vala Helgadóttir, sagði hér, held ég, í öðru orði að hún væri stolt yfir því að mæla fyrir þessu nefndaráliti hér í dag. Ég held að við séum það í grunninn velflest ef ekki öll í þessum sal. Þetta er mjög gott dæmi um það, eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson, flutningsmaður málsins, sem við erum ansi mörg með henni á, sagði, hvernig samstarf og samvinna og vönduð yfirferð getur skilað okkur góðri niðurstöðu því að ég hef fulla trú á því að þetta frumvarp nái fram að ganga og verði að lögum í dag og verði í hópi þeirra sem verður fagnað. Það er nefnilega ríkur vilji til að gera vel í málefnum hinsegin fólks, ekki bara hér inni á þessum vinnustað heldur finnum við það í samfélaginu. Þetta er mikilvægt mál. Það kann að láta lítið yfir sér. Það kann að vera svo að einhverjir haldi að þetta eigi sér nú ekki stað hér á Íslandi í hinsegin paradísinni, eins og stundum er sagt. Sú er þó raunin eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson fór yfir. Við sjáum teikn þess að vilji sé til eða hugmyndir séu um að beita því sem hér eru kallaðar bælingarmeðferðir og hefur verið skilgreint í þessu frumvarpi og enn betur í nefndaráliti í framhaldinu.

Barátta hinsegin fólks er mannréttindabarátta. Ég fór yfir það í ræðu minni hér á eldhúsdegi og ítrekaði það sem hefur komið fram í ræðum í dag að það er bakslag í umræðunni. Það birtist m.a. í umsögnum og viðbótarumsögnum um þetta mál, svo það sé sagt, fyrir þau sem vilja lesa sig í gegnum það allt saman. En þetta skref hefur verið stigið víða, eins og kemur fram í nefndarálitinu, og við hér á Íslandi bætumst þá í þann hóp, verði þetta að lögum, sem ég hef fulla trú á. Ég er mjög stoltur af því að við skulum gera það, að girða fyrir möguleika á þessum óskapnaði. Ég ætla að leyfa mér að nota það orð. Við sem tilheyrum hinsegin samfélaginu þekkjum nefnilega þennan ótta. Við þekkjum þessa orðræðu, þessar augnagötur, þetta viðmót í fjölskyldum. Sjálfur þekki ég ansi marga einstaklinga sem mæta í sínu nærumhverfi orðum eins og: Það þarf nú að laga þig. Það er eitthvað ekki alveg í lagi með þig. — Það þarf ekkert að laga þessa vini mína. Það þarf ekkert að laga mig heldur. Við erum bara eins og við erum og allt í góðu lagi með það. Og við hér, eða þið öllu heldur því að ég var ekki með ykkur þá í þessum sal, samþykktuð lög um kynrænt sjálfræði sem ég minnti á á eldhúsdegi að gefnu tilefni. Fólk hefur fulla heimild til þess að skilgreina sig sjálft. En lögin setja líka þær skyldur á herðar okkar allra hinna að virða það. Það felst engin virðing í því að segja: Það þarf að laga þig, svo ég noti bara orð sem ég hef eftir félögum mínum úr hinsegin samfélaginu. Þetta kemur kannski helst við eða snertir einna helst, eins og farið er yfir í umsögninni, börn og ungmenni og það eru hinsegin börn og ungmenni, sem finna mjög sterklega fyrir bakslagi í samfélaginu. Það höfum við farið yfir og minnst á hér ansi mörg á þessum vettvangi og ég ítreka það sem hér hefur verið sagt, ekki endilega í þessari umræðu en ég veit að við erum sammála um það, að það er samfélagslegt mein sem við þurfum að standa saman að því að vinna gegn, þ.e. þetta bakslag og þær árásir sem börn og ungmenni úr hinsegin samfélaginu verða fyrir. Mig langar, með leyfi forseta, að draga fram orð umboðsmanns barna, af því ég tók ekki alveg eftir því hvort hv. þm. Helga Vala Helgadóttir fór yfir það í áliti sínu, en þar segir, með leyfi forseta:

„Umboðsmaður barna veitti umsögn þar sem fram kemur að börn séu viðkvæmur þjóðfélagshópur og að sá hópur barna sem frumvarpið taki til sé sérstaklega berskjaldaður og þurfi á aukinni vernd að halda, ekki síst með hliðsjón af því bakslagi sem orðið hafi í réttindabaráttu hinsegin fólks.“

Undir þetta tekur réttarfarsnefnd, þ.e. mikilvægi þess að veita fólki og sérstaklega börnum viðeigandi vernd gegn þeim skaða sem bælingarmeðferðir kunni að valda.

Ég ítreka þakkir mínar til hv. þm. Hönnu Katrínar Friðriksson fyrir að bera þetta mál uppi, til hv. þingmanna í allsherjar- og menntamálanefnd sem hafa unnið gríðarlega vel að þessu máli. Ég segi stoltur já og greiði atkvæði með þessu frumvarpi á eftir svo það verði sannarlega að lögum. Það er okkur öllum til sóma.