almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég er stoltur af því að vera meðflutningsmaður þessa frumvarps. Ég er líka stoltur af þingi sem berst fyrir auknum mannréttindum hóps sem á undir högg að sækja vegna bakslags víða um heim. Eitt versta dæmið um það bakslag er nýleg löggjöf í Úganda þar sem hinseginleiki getur varðað lífstíðarfangelsi. Ég er þakklátur ykkur sem hlustið á þjóðina og hlustið á þær raddir sem tala fyrir réttindum hinsegin og kynsegin fólks. Og ég er sérstaklega þakklátur þeirri nefnd hér innan þingsins sem lagði ítarlega og ígrundaða vinnu í að koma þessu frumvarpi áfram. Að lokum er ég sérstaklega þakklátur þingflokkunum hér inni sem létu ekki pólitík stöðva mannréttindi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)