virðisaukaskattur o.fl.
Virðulegi forseti. Mig langar að nýta tækifærið til að vekja athygli á að við í Samfylkingunni erum með þrjár breytingartillögur við þetta frumvarp sem snúa að verkefnalista okkar nú fyrir þinglok. Þetta eru sértækar aðgerðir sem við höfum talað fyrir nú í aðdraganda þingloka þannig að við færum ekki inn í sumarið með það hangandi yfir okkur að vaxtabyrði myndi verða mjög íþyngjandi fyrir lágtekjufólk og ungt fólk sérstaklega. Þarna er tillaga um vaxtabótaauka sem er vel útfærð. Það er líka tillaga um ívilnun til uppbyggingar á húsnæði varðandi undanþágu á virðisaukaskatti. Þetta er m.a. tillaga sem stjórnarliðar, þingmenn í meiri hlutanum, hafa talað fyrir og hæstv. fjármálaráðherra tók vel í á sínum tíma og hér gefst ágætistækifæri til að senda góð skilaboð inn í sumarið.