Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 122. fundur, 9. júní 2023.
virðisaukaskattur o.fl.
952. mál
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar í þingflokki Miðflokksins halda því til haga að við teljum misráðna þá aðgerð sem er partur af þessu frumvarpi, að breyta endurgreiðsluhlutfalli gagnvart uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Þetta eru skilaboð sem eru líkleg til að draga úr framleiðslu á íbúðum en ekki bæta í eins og svo nauðsynlegt er nú um stundir. Ég er hræddur um að þegar tíminn líður muni blasa við okkur að þetta hafi verið misráðið.